Bókin Skattur á fjármagnstekjur og eignir (402 bls.) skiptist í fimm þætti. Fjallar fyrsti þáttur um aðdragandann að setningu laga um fjármagnstekjuskatt, er tóku gildi 1. janúar 1997, og samanburð á skattlagningu fjármagnstekna hér á landi og öðrum Norðurlöndum. Annar þáttur fjallar svo almennt um skattskyldar fjármagnstekjur og hvaða kostnað megi draga frá þeim. Er þar eingöngu um stutt yfirlit að ræða. Í þriðja þætti ræðir svo um reglulegar tekjur af eignum, svo sem arð, vexti, arð og leigu. Myndar hann meginefni bókarinnar ásamt fjórða þætti, er fjallar um ákvörðun hagnaðar, þegar eignirnar, sem hinar reglulegu tekjur gefa, eru seldar. Myndar hann meginefni bókarinnar ásamt fjórða þætti, er fjallar um ákvörðun hagnaðar, þegar eignirnar, sem hinar reglulegu tekjur gefa, eru seldar. Bókin Skattur á fjármagnstekjur og eignir er uppseld. Ekki er þó útilokað að nokkra umfjöllun um fjármagnstekjur sé að finna í bókinni Skattur á menn.