Bókin Íslenskur alþjóðlegur skattaréttur (1146 bls.) skiptist í fjóra megin þætti og innihalda þeir 10 kafla. Hefur fyrsti þáttur að geyma inngang og almennar upplýsingar um gerð og túlkun tvísköttunarsamninga. Í öðrum þætti ræðir svo um afmörkun á skattlagningarvaldi Íslands þegar menn og lögaðilar eiga í hlut, hversu langt má ganga í álagningu og innheimtu skatta er því aðalviðfangsefnið þar. Meginn hluti bókarinnar fjallar hins vegar um skiptingu á skattlagningarrétti til einstakra tekna milli ríkja og afléttingu eða mildun tvískattlagningar þegar sömu tekjurnar eru skattlagðar í fleiri en einu ríki.
Sérstakur kafli er auk þess um gengisskattlagningu og fjallar hann um umreikning á erlendum verðmæli í íslenskar krónur svo og framtal í erlendum verðmæli til skatts. Í þriðja þætti ræðir svo um bann við mismunun og hindrun á grundvelli fjórfrelsis samkvæmt EES-rétti og mismunarbannsákvæði samningsfyrirmyndar OECD. Fjórði og síðasti þátturinn fjallar um heimild innlendra skattyfirvalda til að leiðrétta samningskjör fyrirtækja á grundvelli milliverðsleiðbeininga OECD. Hið rétta verð í viðskiptum milli tengdra félaga er semsé aðal álitaefnið í þeirri umfjöllun. Bókin Íslenskur alþjóðlegur skattaréttur fæst í Bóksölu stúdenta og kostar 15.000 kr. Einnig er unnt að panta hana á netfanginu agv@skattvis.is